Jæja já, það er einmitt það.. Það er svoleiðs alveg hellingur að frétta hérna meginn..

Og þar sem klukkan er að ganga í fjögur að nóttu til og ég gét ekki sofnað ákvað ég að henda inn nokkrum línum frá því sem ég hef verið að bauka síðustu misserin..
Þessi blessaða sýning er náttla löngu yfirstaðinn en hún tókst einmitt afar vel í flesta staði og hef ég nú bara fengið þó nokkuð af hrósi og skemmtilegum tilboðum vegna verka minna þar... Gaman
En annars hefur ýmislegt á daga mína drifið síðan síðast.. Uuhhmm hvar skal byrja, jjááá uhmm t.d. hér.. mér tókst nefnilega að fá umföllun í einu stæðsta fréttariti landsinns en það var einmitt tekið viðtal við strákinn vegna ,,tippateiknunar lokaverkefni" míns.. Þræl skemmtilegt bara og auðvitað rosa flott viðtal um skólann og verkið..

Á sama tíma og nemendasýning okkar var í gangi fékk ég að halda litla sýningu á lítilli seríu sem ég gerði um jólin. Svo var ég fenginn til að vera firstu verðlaun í þræl flottri förðunarkeppni en á því kvöldi var einmitt hengd upp þessi litla sýning sem var stór skemmtilegt nema ég missti mestmegnis af kvöldinu þar sem jarðskjálfti skók Suðurlandsumdæmið og gat ég ekki annað en brunað heim til múttu það kvöldið. En verðlaunin hljóðu semsagt upp á tökudag með mér

þyrfti nú bara að fara ath. hvort sigurvegararnir séu ekki til í að fara gera e-ð skemmtilegt fljótlega..
Ég fór svo í
ÞYRLUFERÐ um daginn að aðstoða Gunnar (sem ég er að vinna fyrir) við að mynda. Það var líka þessi hreinasta tæra snild!!! Djöf... er þetta skemmtilegt!! Nú er bara orustuþotan og geimskutlan eftir á hálofta listanum mínum

Úr háloftadraumunum í vatnasportið en ég var einmitt svo heppinn í vikunni að detta í skemmtilegt projeckt þar sem ég fékk að sigla um á sjó-kaiyak hálfann daginn í dýrlegri blíðu í einn náttúruperlu landsinns. Aðsjálfsögðu að mynda allann tímann og mun afrakstu ferðarinnar sjást í flottasta ,,götublaði" landsinns í næstu viku. Svo er einnig gaman að segja frá því að ég var að vinna mynd um daginn af Forsetafrúnni okkar, henni Dorrit.. mjög skemmtilegt. Í dag var ég svo að vinna mynd sem kemur til með að prýða forsíðu tímarits ásamt einni sem kemur til með að vera heil opna í þessu sama tímarit, ég myndaði reyndar ekki sjálfur heldur var það hún Sissa ,,kennari" sem myndaði en ég sá svo um alla eftirvinnslu.. Skemmtilegt projeckt og verður gaman að sjá hvernig kemur út.. Hlakkar til!!
Jæja eitthvað fleira að frétta? uuh já, einnig gaman að segja frá því að ef fólk rýnir alveg ofboðslega vel (þá meina ég alveg ofboðslega vel

) í eina af nýjustu Securitas auglýsingunum þá ætti fólka að relka augun í bakgrunnsmódelið á ,,grænu Seljarvallar sundlaugar myndinni" ...en júbb það er einmitt strákurinn

Myndina má t.d. sjá í strætóskýlum borgarinnar sem og í fréttablöðum landsmanna.
Björk og Sigurrós voru svo í viðtali upp í studioi hjá okkur í dag, tengist e-ð tónleikunum sem verða á morgun en ég ætla einmitt pottþétt að reyna kíkja á þá.. ef ég næ einhventímann að sofna og svo vakna í tæka tíð

.. því aldrei þessu vant ætla ég að reyna eiga frí í einn dag

Jæja ég held þetta sé bara orðið nóg af fréttum í bili.. finnst þetta hálfpartinn allt farið aðhljóma eins og eitthvað mont en svona er þetta bara þegar maður velur sér skemmtilega atvinnu

og reynir að hafa gaman af... úhhyeahhh
Segjum það í bili..
kv. ÉG
P.s.

Mér finnst þessi nett fyndin... og ákvað því að skella henni hér með.. en ég kíkti í stutta veiðiferð upp í Elliðárvatn með Herði og Árnýju í fyrrakvöld og náði þessari þegar skugginn minn var að reyna ,,aðstoða" Hörðinn úr vöðlunum..eða hvað?!

...svo sem ekki frá sögu færandi

hahaha..